Tvöföldun eftirlits í skjóli einföldunar – FHU varar við vanhugsuðum kerfisbreytingum
Í tilefni fundar ráðuneyta í gær undir yfirskini einföldunar á regluverki vill Félag heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa (FHU) koma á framfæri að raungerist tillagan hafi það hvorki einföldun eftirlits né fækkun eftirlitsaðila í för með sér. Aðilar sem í dag fá eftirlit heilbrigðiseftirlits sem staðsett er í þeirra heimabyggð munu framvegis lúta eftirliti tveggja ríkisstofnana.
Félag heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa leggst gegn tillögunni og vill ítreka mikilvægi þess að áform um kerfisbreytingar af þessu tagi séu vel ígrunduð og nauðsyn þess að haft sé samráð við sérfræðinga í heilbrigðiseftirliti.
“Tillögurnar sem kynntar voru í gær sýna mikið skilningsleysi á málaflokknum og þeim fjölbreyttu verkefnum sem heilbrigðiseftirlit sinnir”, segir Pétur Halldórsson, heilbrigðisfulltrúi og gjaldkeri félagsins. “Sveitarfélögin hafa haldið úti heilbrigðiseftirliti síðastliðin 124 ár. Lögbundið hlutverk heilbrigðiseftirlits, að standa vörð um heilnæmi umhverfis fyrir íbúa sína, virðist ekki vera haft að leiðarljósi í núverandi tillögum. Kynnt einföldun virðist einblína fyrst og fremst á leyfisskylda starfsemi en ekki heilbrigðiseftirlit almennt.
Líklegt er að eftirlit frá tveimur stofnunum myndi auka kostnað hjá rekstaraðilum, skilvirkni eftirlits myndi minnka og hætt við að hagsmunir almennings muni gleymast en heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur gegnum tíðina verið öflugur málsvari hins almenna borgara.“
FHU hvetur ráðuneytin til að setja hagsmuni almennings í forgang, endurskoða áformin og hefja raunverulegt samtal við fagfólk í heilbrigðiseftirliti áður en frekari skref eru tekin og íhuga það að stíga nokkur skref til baka, bæta gallaða löggjöf, draga úr gullhúðun og flækjustigi sem hefur skapast vegna vanhugsaðra breytinga sem gerðar hafa verið án nægilegrar fagþekkingar.
FHU styður þó þá tillögu varðandi skráningakerfi heilbrigðiseftirlits sem gæti styrkt samræmingu milli svæða. FHU lýsir sig reiðubúin til að taka þátt í samtali um hvernig best væri að því staðið.
Til upplýsinga:
Framtíð heilnæms umhverfis á Íslandi
Fréttatilkynning frá SHÍ varðandi ákvörðun um breyta skipan heilbrigðiseftirlits á Íslandi