Fundað um óvissu heilbrigðiseftirlits í landinu

Jun 01, 2026


Vegna fundar FÍN og heilbrigðisfulltrúa í dag vill Félag Heilbrigðisfulltrúa koma eftirfarandi á framfæri.

Umhverfis-, loftslags- og orkuráðherra og atvinnuvegaráðherra fyrirhuga að leggja niður heilbrigðiseftirlit. Félag heilbrigðisfulltrúa lýsir þungum áhyggjum vegna breytinganna og fordæmir alvarlegan skort á samráði við fagfólk en algjörlega var litið framhjá þeim rúmlega 100 umsögnum sem gagnrýndu tillögurnar í Samráðsgátt stjórnvalda. 

Fyrirhugað er að breytingarnar komi til framkvæmda þann 1.janúar 2027. “Þetta er alveg galinn tímafrestur” segir Kolbrún Georgsdóttir, formaður Félags heilbrigðisfulltrúa. “Það er verið að henda út heilu eftirlitskerfi, skipta aragrúa verkefna milli stofnana og mjög óljóst er hvar verkefnin lenda, eins og til dæmis vatnsvernd, hlutverk í neyðarstjórnun og kvartanir frá almenningi. Það sjá allir að þetta er gjörsamlega óraunhæft og stórhættulegt.

Okkur þykir sjálfsagt að lýðheilsa á Íslandi er almennt góð en það má þakka fyrirbyggjandi og reglubundnu heilbrigðiseftirliti. Við þekkjum til dæmis ekki hópsýkingar í sundlaugum en þær koma reglulega upp erlendis. Þá eru stórar hópmatarsýkingar fátíðar hér á landi en með breytingunum er öryggi almennings stefnt í hættu. Viljum við búa í landi þar sem við þurfum að hafa áhyggjur af þessu?

Algjör óvissa ríkir um störf heilbrigðisfulltrúa og takmörkuð upplýsingagjöf hefur farið fram af hálfu ríkisins um hvort og þá hvernig starfsöryggi og réttindi starfsmanna verði tryggt. Enginn starfsmaður verður fluttur sjálfkrafa á milli og enn er óljóst hversu margir fá vinnu gangi breytingarnar eftir. Kolbrún segir þetta verulegt áhyggjuefni og vanvirðingu við heilbrigðisfulltrúa, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem atvinnutækifæri eru takmörkuð og sérfræðiþekking gríðarlega dýrmæt. “Það er alveg horft framhjá mikilvægi staðbundinnar þekkingar og þjónustu við íbúa í nærsamfélaginu.” segir Kolbrún.

Leggja á niður starfstétt heilbrigðisfulltrúa sem er lögverndað starfsheiti og byggir á faglegum grunni. Félag heilbrigðisfulltrúa skorar á ráðherra að hætta við þau áform og leggja frekar áherslu á að tryggja faglegt og heildstætt eftirlit almenningi til heilla.

Skorað er á umhverfis- og samgöngunefnd og atvinnuveganefnd að senda frumvörpin til baka í ráðuneytin sem þurfa að skoða málið heildstætt því núverandi áform munu vera gríðarlega kostnaðarsöm, áhættusöm, auka flækjustig, tvöfalda leyfisveitingakerfið, þyngja umsýslu og færa þjónustu fjær þeim sem á henni þurfa að halda. 

Nánari upplýsingar: 

Heilnæmt umhverfi í hættu

Athugasemdir SHÍ við óútfært eftirlitskerfi 

Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum:

Stofnun atvinnu­veganna: