For­sætis­ráð­herra talar um virðingu, en hvað með starfs­fólk heil­brigðis­eftir­litsins?

Jun 08, 2026

Stjórn Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi sendi frá sér skoðanagrein þar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gagnrýnd fyrir að sýna starfsfólki heilbrigðiseftirlitsins ekki þá virðingu sem hún boðar í stjórnmálum. Áform ríkisstjórnarinnar um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa skapað mikla óvissu um framtíð og störf starfsmanna heilbrigðiseftirlitsins. Höfundar benda á að raddir og staðþekking starfsfólksins hafi verið virtar vettugi í ferlinu og kalla eftir því að stjórnvöld sýni virðingu og traust í verki með því að eiga skýrt samtal og veita svör um framtíðina.

Lesa má greinina inn á vísi hér: 
For­sætis­ráð­herra talar um virðingu, en hvað með starfs­fólk heil­brigðis­eftir­litsins?