Andmæltu í samráðsgátt

Feb 20, 2026

Stjórn Félags heilbrigðisfulltrúa (FHU) hvetur almenning til að senda inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda um frumvarpsdrög S-31/2026 sem ógnar starfsháttum heilbrigðisfulltrúa, lýðheilsu og eftirliti um landið.


Hér neðst er tillaga að umsögn sem allir geta notað. Við hvetjum ykkur til að bæta inn í textann þeim atriðum sem ykkur liggja á hjarta og þið megið breyta honum að vild.

Athugið: Umsagnarfresturinn rennur út í dag þann 20. febrúar 2026.


Hvernig sendir þú inn umsögn?

1. Farðu á: Samráðsgátt | Mál S-31/2026
2. Smelltu á „Senda inn umsögn"
3. Skráir þig inn með rafrænum skilríkjum.
4. Skrifaðu þína umsögn. Þú getur einnig afritaðu textann hér að neðan óbreyttan eða lagfært eftir þínu höfði.
5. Sendir inn.
 
------------------------------------------------------------------------------
Tillaga að umsögn:

Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram frumvarpsdrög um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs og flutning alls matvælaeftirlits frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga til nýrrar ríkisstofnunar. Ég hef verulegar áhyggjur af áhrifum frumvarpsins og leggst gegn því í núverandi mynd.

Gert er ráð fyrir í frumvarpsdrögunum að fagstétt heilbrigðisfulltrúa verði lögð niður og menntunar- og hæfniskröfur afnumdar. Mikil óvissa ríkir um starfsmannamál. Ég óttast að breytingarnar leiði til brotthvarfs starfsfólks og þjónusturofs, sérstaklega þar sem aðlögunartími er skammur og skýra innleiðingaráætlun skortir. Þá hefur ekki farið fram fullnægjandi greining á fjárhagslegum áhrifum, áhrifum á landsbyggðina, á lýðheilsu eða hvernig markmiðum um einföldun og skilvirkni verður náð.

Heilbrigðiseftirlit gegnir víðtæku hlutverki meðal annars í að tryggja heilnæm lífsskilyrði, hafa eftirlit með leyfisskyldri starfsemi, sinna kvörtunum, veita umsagnir um skipulag og rekstrarleyfi og koma að sóttvörnum og almannavörnum. Staðbundin þekking og nálægð við samfélögin er hornsteinn árangursríks eftirlits. Flutningur verkefna til stórrar miðlægrar ríkisstofnunar eykur líklega fjarlægð, boðleiðir og skapar tvíverknað.

Ég tek undir að þörf er á umbótum og betri samræmingu en tel raunhæfara að styrkja yfirstofnanir, efla samráð og koma fram með samræmt skráninga og upplýsingakerfi. Tækifæri til einföldunar regluverks eru ekki mörg og frumvarpsdrögin ganga lengra en ESA telur þörf á. Athugsemdir ESA lúta að samræmingarhlutverki Matvælastofnunar en frumvarpsdrögin sýna ekki fram á hvernig komið verður til móts við þær kröfur. Sameining stofnana tryggir ekki sjálfkrafa samræmingu.

Að mínu mati eru boðaðar breytingar illa undirbúnar og legg til að frumvarpið verði dregið til baka í heild sinni. Ég tek einnig undir umsagnir Félags heilbrigðisfulltrúa (FHU) og Sambands heilbrigðiseftirlita (SHÍ).

---------------------------------------------------------------------------------

Því fleiri umsagnir sem koma inn í samráðsgáttina því meiri líkur eru á að boðskapurinn nái í gegn. Hver umsögn telur!
 
Með bestu kveðju,
Stjórn Félags heilbrigðisfulltrúa