Andmæltu í samráðsgátt

Feb 16, 2026

Stjórn Félags heilbrigðisfulltrúa (FHU) hvetur almenning til að senda inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda um frumvarpsdrög S-3/2026 sem ógnar heilbrigðiseftirliti, lýðheilsu og starfsháttum heilbrigðisfulltrúa um landið. 

Hér fyrir neðan er tillaga að umsögn sem nota má að vild. Við hvetjum ykkur til að bæta inn í umsögnina, atriðum sem ykkur liggur á hjarta.

Athugið: Umsagnarfresturinn rennur út á morgun þann 17. febrúar 2026.

Hvernig sendir þú inn umsögn?

1. Farið er inn á: Samráðsgátt | Mál S-3/2026
2. Smellt er á „Senda inn umsögn"
3. Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
4. Skrifaðu þína umsögn. Þú getur einnig afritaðu textann hér að neðan óbreyttan og/eða lagfært eftir þínu höfði.
5. Sendir inn.

Tillaga að umsögn:

—---------------------------------------------------------------------------------

Umsögn um frumvarp S-3/2026

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur lagt fram frumvarp um að leggja niður núverandi heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og flytja verkefnin til ríkisins í nafni einföldunar og aukinnar skilvirkni. Ég tel að með þessu sé verið að útmá starfsheitið heilbrigðisfulltrúi og afnema menntunar- og hæfniskröfur. Þetta ógnar fagmennsku, lýðheilsu og þjónustu um landið. Ég óttast að breytingin grafi undan forvarnarhlutverki eftirlitsins og muni hafa neikvæð áhrif á almenning og rekstraraðila.

Heilbrigðiseftirlit gegnir víðtæku hlutverki meðal annars í að tryggja heilnæm lífsskilyrði, hafa eftirlit með leyfisskyldri starfsemi, sinna kvörtunum, veita umsagnir um skipulag og rekstrarleyfi og koma að sóttvörnum og almannavörnum. Staðbundin þekking og nálægð við samfélögin er hornsteinn árangursríks eftirlits. Flutningur verkefna til miðlægra ríkisstofnana kann að auka fjarlægð, lengja boðleiðir og skapa tvíverknað.

Mikil óvissa ríkir um starfsmannamál. Ég óttast að breytingarnar leiði til brotthvarfs starfsfólks og þjónusturofs, sérstaklega þar sem aðlögunartími er skammur og skýra innleiðingaráætlun skortir. Þá hefur ekki farið fram fullnægjandi greining á fjárhagslegum áhrifum, áhrifum á landsbyggðina, á lýðheilsu eða hvernig markmiðum um einföldun og skilvirkni verður náð.

Ég tek undir að þörf er á umbótum og betri samræmingu en tel raunhæfara að styrkja yfirstofnanir, efla samráð og koma fram með samræmt skráninga og upplýsingakerfi. Að mínu mati eru boðaðar breytingar illa undirbúnar og legg til að frumvarpið verði dregið til baka í heild sinni. Ég tek einnig undir umsagnir Félags heilbrigðisfulltrúa (FHU) og Sambands heilbrigðiseftirlita (SHÍ).